Nefndin er starfrækt á grundvelli V. kafla upplýsingalaga nr. 50/1996 til að leysa úr ágreiningsmálum um aðgang almennings að upplýsingum hjá stjórnvöldum.
Nefndin er sjálfstæð og óháð stjórnsýslunefnd sem skipað er til hliðar við hið almenna stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga. Valdsvið nefndarinnar nær til allrar stjórnsýslu hins opinbera án tillits til á hvaða stjórnsýslustigi ákvörðun er tekin. Aðili þarf því ekki að tæma aðrar kæruleiðir innan stjórnsýslunnar áður en til hennar er leitað.
Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir og verður ekki skotið annað innan stjórnsýslunnar. Þeir hafa því jafnframt fordæmisgildi fyrir önnur stjórnvöld og stuðla þannig að auknu samræmi í framkvæmd upplýsingalaganna.
Kærð var synjun Landspítala háskólasjúkrahúss á gögnum er vörðuðu opinber, en óútboðsskyld, innkaup spítalans á tilteknum vöruflokkum. Beiðni um gögn nægilega afmörkuð við tilgreind mál. Aðgangur aðila að gögnum er varða hann sjálfan. Ekki sýnt fram á að aðgangur að gögnunum gæti skaðað samkeppnisstöðu Landspítala eða hagsmuni viðskiptamanna spítalans, í samkeppni við kæranda. Ekki fallist á að aðgangur að gögnunum gæti verið til þess fallinn að valda fyrirtækjunum tjóni yrðu upplýsingarnar gerðar opinberar. Ráðstöfun almannafjár. Aðgangur veittur.
Lesa meiraKærð var synjun landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins á afhendingu efnahagsreikninga Bændasamtaka Íslands fyrir árin 2008-2010. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Ráðstöfun opinberra fjármuna. Aðgangur veittur.
Lesa meira