Skipan úrskurðarnefndar
Samkvæmt 15. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 skipar forsætisráðherra skipar þrjá menn í úrskurðarnefnd um upplýsingamál til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara. Tveir nefndarmenn og varamenn þeirra skulu uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara. Skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar en hinn varaformaður. Nefndarmenn mega ekki vera fastráðnir starfsmenn í Stjórnarráði Íslands.
- Núverandi skipan úrskurðarnefndar
- Skipan úrskurðarnefndar 2010 til 2011
- Skipan úrskurðarnefndar 2007 til 2010
- Skipan úrskurðarnefndar 2005 til 2007
- Skipan úrskurðarnefndar 2001 til 2004
- Skipan úrskurðarnefndar 1997 til 2000
Nefndin er sjálfstæð í störfum sínum og óháð öðrum stjórnvöldum. Nefndin nýtur þó ritara- og skrifstofuþjónustu úr forsætisráðuneytinu og má beina kærum til nefndarinnar þangað.
