Uppkveðnir úrskurðir

A-399/2011. Úrskurður frá 29. desember 2011. - 29.12.2011

Kærð var sú ákvörðun Ago rekstrarfélags ehf. að synja um aðgang að samstarfssamningi við Icelandair. Gildissvið upplýsingalaga. Einkaréttarleg félög í eigu hins opinbera.
Frávísun.

Lesa meira
 

A-398/2011. Úrskurður frá 29. desember 2011. - 29.12.2011

Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að ýmsum gögnum rannsóknarnefndar Alþingis sem vörðuðu bankann Glitni, þ. á m. skýrslum stjórnenda og starfsmanna fyrir rannsóknarnefndinni. Tilgreining máls eða gagna í máli. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Frávísun að hluta, synjun staðfest að hluta, úrskurði um aðgang að öðrum skýrslum frestað að svo stöddu.
Lesa meira
 

A-397/2011. Úrskurður frá 29. desember 2011. - 29.12.2011

Kærð var sú ákvörðun fjármálaráðuneytisins að synja um upplýsingar um kostnað við samninganefndir Íslands í Icesave-málinu. Bókhaldsgögn. Tilgreining máls eða gagna í máli. Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A-396/2011. Úrskurður frá 29. desember 2011. - 29.12.2011

Kærðar voru ákvarðarnir Neyðarlínunnar ohf. og lögreglunnar á Selfossi að synja um aðgang að upplýsingum um tilkynnanda. Gildissvið upplýsingalaga. Einkaréttarleg félög í eigu hins opinbera. Aðili máls. Frávísun að hluta, aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A-395/2011. Úrskurður frá 14. desember 2011 - 21.12.2011

Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um aðgang að ráðningarsamningi forstjóra stofnunarinnar. Kæruheimild. Þegar orðið við beiðni. Frávísun. Lesa meira
 

A-394/2011. Úrskurður frá 14. desember 2011 - 21.12.2011

Kærður var dráttur Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands og Öndvegissetursins Eddu á að svara beiðnum kæranda um ýmsar upplýsingar sem tengdust fyrirlestrarröðinni Eilífðarvélinni og samnefndri bók. Ráðstöfun almannafjár. Aðgangur veittur.
Lesa meira
 

A-393/2011. Úrskurður frá 14. desember 2011 - 21.12.2011

Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að takmarka aðgang að gögnum um föst launakjör tiltekinna starfsmanna. Beiðni skal beint að stjórnvaldi sem tekur stjórnvaldsákvörðun. Tilgreining máls eða gagna í máli. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Launakjör opinberra starfsmanna. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-392/2011. Úrskurður frá 14. desember 2011 - 21.12.2011

Kærð var sú ákvörðun Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins og sveinsprófsnefndar í rafgreinum að synja um afhendingu 21 prófverkefnis. Ljósrit. Aðgangur veittur.
Lesa meira
 

A-391/2011. Úrskurður frá 14. desember 2011 - 21.12.2011

Kærð var sú ákvörðun mennta- og menningarmálaráðuneytisins að synja um aðgang að upplýsingum um samskiptaerfiðleika í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-390/2011. Úrskurður frá 25. nóvember 2011 - 8.12.2011

Kærð var sú ákvörðun forseta Íslands að synja um aðgang að undirskriftalista sem afhentur var forsetanum til þess að hvetja hann til að undirrita ekki lög nr. 13/2011 um svonefnda Icesave-samninga. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun. Lesa meira
 

A-389/2011. Úrskurður frá 25. nóvember 2011 - 8.12.2011

Kærð var sú ákvörðun Sorpu bs. að synja um aðgang að gögnum sem vörðuðu breytingu á stofnsamþykkt byggðasamlagsins árið 2007. Gildissvið upplýsingalaga. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-388/2011. Úrskurður frá 25. nóvember 2011 - 7.12.2011

Kærð var sú ákvörðun Strætó bs. að synja um aðgang að gögnum er urðu til í tengslum við útboð kærða og gögnum er vörðuðu síðari samskipti kærða við Hagvagna hf. eftir að samþykkt var að ganga að tilboði félagsins. Gildissvið upplýsingalaga. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur að hluta.
Lesa meira
 

A-387/2011. Úrskurður frá 25. nóvember 2011 - 7.12.2011

Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslu sem gefin var fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 22. október 2009. Þagnarskylda. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-386/2011. Úrskurður frá 14. október 2011 - 1.11.2011

Kærð var sú ákvörðun forsætisráðuneytisins að synja um afhendingu bréfa forseta Íslands til forsætisráðherra, dags. 29. júní og 13. júlí 2010. Gögn í vörslum stjórnvalds. Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A-385/2011. Úrskurður frá 14. október 2011 - 1.11.2011

Kærð var sú ákvörðun forseta Íslands að synja um aðgang að bréfi forseta til forsætisráðherra, dags. 13. júlí 2010. Skjöl tekin saman fyrir fundi ríkisráðs. Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A-384/2011. Úrskurður frá 14. október 2011 - 1.11.2011

Kærð var sú ákvörðun forseta Íslands að synja um aðgang að bréfi forseta til forsætisráðherra, dags. 13. júlí 2010. Skjöl tekin saman fyrir fundi ríkisráðs. Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A-383/2011. Úrskurður frá 11. október 2011 - 31.10.2011

Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um afrit af leyfum til veiða á háhyrningum frá árinu 1983 og tengdum gögnum. Tilgreining máls eða gagna í máli.  Frávísun. Lesa meira
 

A-382/2011. Úrskurður frá 11. október 2011 - 31.10.2011

Kærð var afgreiðsla ríkislögmanns á beiðni um gögn um bann Fjármálaeftirlitsins við viðskiptum með hlutabréf í Glitni banka þann 6. október 2008. Kærufrestur. Kæruleiðbeiningar.
Frávísun.

Lesa meira
 

A-381/2011. Úrskurður frá 14. október 2011 - 31.10.2011

Kærð var sú ákvörðun landskjörstjórnar að synja um aðgang að gögnum um niðurstöðu talningar atkvæða í kosningum til stjórnlagaþings. Gildissvið upplýsingalaga.
Frávísun. Lesa meira
 

A-380/2011. Úrskurður frá 11. október 2011 - 31.10.2011

Kærð var sú ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að synja um afhendingu afrita af öllum gildandi samningum stofnunarinnar um sértæka heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega var tilgreindur samningur stofnunarinnar við Norðurál. Tilgreining máls eða gagna í máli. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta, frávísun. Lesa meira
 

A-379/2011. Úrskurður frá 11. október 2011 - 31.10.2011

Kærð var sú ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Austurlands að synja um afhendingu afrita af öllum gildandi samningum stofnunarinnar um sértæka heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega var tilgreindur samningur stofnunarinnar við Alcoa Fjarðarál sf. Tilgreining máls eða gagna í máli. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta, frávísun. Lesa meira
 

A-378/2011. Úrskurður frá 11. október 2011 - 31.10.2011

Kærð var sú ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands að synja um afhendingu afrita af öllum gildandi samningum stofnunarinnar um sértæka heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega voru tilgreindir samningar stofnunarinnar við sveitarfélögin Árborg og Hveragerðisbæ. Tilgreining máls eða gagna í máli. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Aðgangur veittur að hluta, frávísun.

Lesa meira
 

A-377B/2011. Úrskurður frá 14. desember 2011 - 30.10.2011

Farið fram á endurupptöku máls nr. A-377/2011. Beiðni um endurupptöku máls. Endurupptöku hafnað. Lesa meira
 

A-377/2011. Úrskurður frá 16. september 2011 - 30.10.2011

Kærð var sú ákvörðun heilbrigðisráðuneytisins að synja um aðgang að samningi við GlaxoSmithKline ehf. um kaup á bóluefni við svínaflensu o.fl. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-376/2011. Úrskurður frá 16. september 2011 - 29.10.2011

Kærð var sú ákvörðun utanríkisráðuneytisins að synja um aðgang að gögnum sem orðið hefðu til eftir að kærandi sendi tiltekna kvörtun til Eftirlitsstofnunar Fríverslunarsamtaka Evrópu og vörðuðu það málefni sem kvörtunin beindist að. Aðili máls. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-375/2011. Úrskurður frá 28. júní 2011 - 4.7.2011

Kærð var sú afgreiðsla Fjölbrautaskólans í Ármúla að synja um aðgang að gömlum prófum nema greiddar væru 500 kr. fyrir ljósrit af hverju prófi. Gjaldtaka fyrir ljósrit. Aðgangur veittur skv. skilyrðum gjaldskrár nr. 306/2009. Lesa meira
 

A-374/2011. Úrskurður frá 28. júní 2011 - 4.7.2011

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um kaup lífeyrissjóða á íbúðabréfum í eigu ríkissjóðs. Fyrirliggjandi gögn. Vinnuskjöl.
Synjað um aðgang. Lesa meira
 

A-373/2011. Úrskurður frá 28. júní 2011 - 4.7.2011

Kærð var sú ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur að synja um aðgang að gögnum er varða kaup Magma Energy Sweden AB á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku hf. Gildissvið upplýsingalaga. Afmörkun kæruefnis. Gildissvið laga um upplýsingarétt um umhverfismál.
Frávísun. Lesa meira
 

A-372/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011 - 21.6.2011

Kærð var sú ákvörðun umboðsmanns Alþingis að synja um afhendingu korts af deiliskipulagssvæði sem kvörtun kæranda til umboðsmanns Alþingis laut að. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun. Lesa meira
 

A-371/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011 - 21.6.2011

Kærð var sú ákvörðun Blönduósbæjar að synja um afhendingu afrits af ráðningasamningum sveitarfélagsins við sviðsstjóra tæknideildar, skólastjóra grunnskóla, fjármálastjóra, bæjartæknifræðing, leikskólastjóra og bæjarstjóra sveitarfélagsins. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Ljósrit. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-370/2010. Úrskurður frá 31. maí 2011 - 21.6.2011

Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um aðgang að svörum fjögurra fjármálafyrirtækja við fyrirspurn stofnunarinnar. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila.
Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-369/2010. Úrskurður frá 31. maí 2011 - 21.6.2011

Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um fullan aðgang að skýrslu dagsettri 2. nóvember sem nefnist: „Sérstök athugun, að beiðni stjórnar Fjármálaeftirlitsins, á atriðum er varða hæfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins.“ Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-368/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011 - 20.6.2011

Kærð var sú ákvörðun Barnaverndarstofu að synja um aðgang að gögnum er varða umsókn barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar um meðferð fyrir dóttur kæranda á meðferðarheimilinu A. Gildissvið upplýsingalaga. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-367/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011 - 20.6.2011

Kærð var sú ákvörðun Borgarskjalasafns Reykjavíkur að synja kæranda um aðgang að ýmsum gögnum um látinn föður sinn. Aðili máls. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-366/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011 - 20.6.2011

Kærð var sú ákvörðun Háskóla Íslands að synja um aðgang að listum yfir útreiknuð rannsóknastig háskólakennara við skólann fyrir árin 2001-2009. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Frávísun. Lesa meira
 

A-365/2011. Úrskurður frá 15. apríl 2011 - 10.5.2011

Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um aðgang að minnisblaði um viðbrögð við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna nr. 1306/2004 frá 24. október 2007. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-364/2011. Úrskurður frá 15. apríl 2011 - 10.5.2011

Kærð var sú ákvörðun Fornleifaverndar ríkisins að synja um aðgang að úttekt á kostnaði af viðhaldi Stangar í Þjórsárdal. Vinnuskjöl. Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A-363/2011B. Úrskurður frá 27. apríl 2011 - 28.4.2011

Farið var fram á það við úrskurðarnefnd um upplýsingamál að réttaráhrifum úrskurðar nefndarinnar nr. A-363/2011 yrði frestað. Frestun réttaráhrifa hafnað. Lesa meira
 

A-363/2011. Úrskurður frá 15. apríl 2011 - 28.4.2011

Kærð var sú ákvörðun efnahags- og viðskiptaráðuneytisins að synja um aðgang að drögum að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um innistæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999. Mikilvægir almannahagsmunir vegna fyrirhugaðra ráðstafana eða prófa á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A-362/2011. Úrskurður frá 31. maí 2011 - 1.4.2011

Kærður var dráttur og synjun Samkeppniseftirlitsins á beiðni um aðgang upplýsingum um rannsókn eftirlitsins á meintu ólögmætu samráði milli Hátækni ehf. og Tæknivara ehf./Skipta hf. á heildsölumarkaði fyrir farsíma.  Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-361/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011 - 7.3.2011

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál, fjölda veittra undanþága frá því reglurnar tóku gildi og afrit af ákvörðunum þar sem fallist var á beiðni um undanþágu. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-360/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011 - 7.3.2011

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál, fjölda veittra undanþága frá því reglurnar tóku gildi og afrit af ákvörðunum þar sem fallist var á beiðni um undanþágu. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-359/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011 - 7.3.2011

Kærð var sú ákvörðun Landvirkjunar að synja um aðgang að gögnum um samskipti fyrirtækisins við Magma Energy, Geysi Green Energy, HS Orku o.fl. Gildissvið laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Fyrirliggjandi gögn.Frávísun.

Lesa meira
 

A-358/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011 - 7.3.2011

Kærð var sú ákvörðun iðnaðarráðuneytisins að synja um afhendingu bréfs forstjóra Magma Energy til iðnaðarráðherra í heild sinni. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-357/2011. Úrskurður frá 22. febrúar 2011 - 7.3.2011

Kærð var sú ákvörðun iðnaðarráðuneytisins að synja um afhendingu bréfs forstjóra Magma Energy til iðnaðarráðherra í heild sinni. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-356/2011. Úrskurður frá 26. janúar 2011 - 4.2.2011

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál í tengslum við kaup á hlutabréfum Geysis Green Energy í HS Orku. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila.

Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A-355/2011. Úrskurður 26. janúar 2011 - 4.2.2011

Kærður var dráttur og synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um afrit af þremur bréfum til Íslandsbanka hf., NBI hf. og Nýja Kaupþings banka hf. sem vörðuðu hæfi starfsmanna bankanna. Þagnarskylda. Einkamálefni einstaklinga.

Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A-354/2011. Úrskurður frá 10. janúar 2011 - 28.1.2011

Kærð var sú ákvörðun Fiskistofu að synja um aðgang að upplýsingum um einstakar landanir erlendra skipa á uppsjávarfiski á Íslandi á árinu 2010 ásamt upplýsingum um hvað greitt var fyrir aflann úr hverri löndun, sundurliðað eftir því til hvers konar vinnslu aflinn fór og hver kaupandi aflans var í hvert sinn. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Þagnarskylda.Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-353/2011. Úrskurður frá 10. janúar 2011 - 28.1.2011

Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um aðgang að tveimur minnisblöðum ráðuneytisins um jörðina [A] og [B] í Suður-Þingeyjarsýslu. Vinnuskjöl.

Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A-352/2011. Úrskurður frá 10. janúar 2011 - 28.1.2011

Kærð var sú ákvörðun sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps að synja um aðgang að bréfi sem sent var sveitarstjórninni og varðaði jörð kæranda í hreppnum. Kæruheimild. Aðili máls.

Aðgangur veittur, frávísun að hluta.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica