Uppkveðnir úrskurðir

A-157/2002 Úrskurður frá 30. desember 2002 - 30.12.2002

Kærð var synjun dóms- og kirkjumálaráðuneytisins um að veita aðgang að úrlausnum úr heimaverkefnum sem fengu jákvæða umsögn dómnefndar í prófum um dómtúlka og skjalaþýðendur. Mat á prófúrlausnum. Þagnarskylda. Skýring upplýsingalaga. Gildissvið upplýsingalaga. Einkahagsmunir annarra. Veittur aðgangur að hluta. Lesa meira
 

A-156/2002 Úrskurður frá 9. desember 2002 - 9.12.2002

Kærð synjun utanríkisráðuneytisins um að veita aðgang að kröfulista þjóða í yfirstandandi viðræðum á grundvelli alþjóðlegs samnings. Samkeppni. Trúnaðarmál. Almannahagsmunir. Samskipti íslenska ríkisins við erlend ríki og fjölþjóðastofnanir. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-1552002 Úrskurður frá 8. nóvember 2002 - 8.11.2002

Kærð var meðferð landlæknis á beiðni um aðgang að gögnum er vörðuðu veikindi móður beiðanda. Þagnarskylda. Skýring upplýsingalaga. Gildissvið. Lögvarðir hagsmunir. Upplýsingaréttur aðila. Kæruheimild. Frávísun. Lesa meira
 

A-154/2002 Úrskurður frá 25. október 2002 - 25.10.2002

Kærð var synjun forsætisráðuneytisins um aðgang að tilteknum gögnum um sölu á hlut ríkisins í Landsbanka Íslands hf. Fyrirhugaðar ráðstafanir. Brottfall takmarkana. Viðskiptahagsmunir. Einka- og fjárhagshagsmunir einstaklinga og fyrirtækja. Skýring upplýsingalaga. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-153/2002 Úrskurður frá 22. október 2002 - 22.10.2002

Kærð var synjun landlæknis um aðgang að bréfi hans til yfirlæknis um starfsleyfi til handa kínverskum lækni. Einka- og fjárhagshagsmunir einstaklinga. Kæruheimild. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-152/2002 Úrskurður frá 8. ágúst 2002 - 8.8.2002

Kærð var synjun dóms- og kirkjumálaráðuneytisins um að veita aðgang að bréfi til flugfélags vegna tiltekinna öryggisráðstafana í tengslum við opinbera heimsókn þjóðhöfðingja til Íslands. Lögskýring. Takmarkanir á upplýsingarétti vegna almannahagsmuna. Einkahagsmunir einstaklinga. Öryggi ríkisins. Stjórnarskrá. Aðgangur að hluta. Lesa meira
 

A-151/2002 Úrskurður frá 15. júlí 2002 - 15.7.2002

Kærð var synjun dóms- og kirkjumálaráðuneytisins um að veita aðgang að reglum um vopnaburð, settar með stoð í vopnalögum. Takmarkanir á upplýsingarétti vegna almannahagsmuna. Öryggi ríkisins. Lögskýring. Gildissvið upplýsingalaga. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-150/2002 Úrskurður frá 11. júlí 2002 - 11.7.2002

Kærð var synjun Mosfellsbæjar um að veita aðgang að lögfræðiáliti sem aflað var vegna bótakröfu á hendur bænum. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum. Upplýsingaréttur aðila. Stjórnvaldsákvörðun. Kæruleiðbeiningar. Kæruheimild. Frávísun. Lesa meira
 

A-148/2002 Úrskurður frá 3. júlí 2002 - 3.7.2002

Kærð var synjun Hreppsnefndar Austur-Eyjafjallahrepps um að veita aðgang að útboðsgögnum. Hlutverk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Útboð. Gildissvið upplýsingalaga. Upplýsingaréttur aðila. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Takmarkanir á upplýsingarétti. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-149/2002 Úrskurður frá 1. júlí 2002 - 1.7.2002

Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytis um aðgang að gögnum um ríkisjörð. Beiðni um aðgang að upplýsingum. Tilgreining máls. Fjöldi mála. Synjun. Lesa meira
 

A-147/2002 Úrskurður frá 10.4 2002 - 10.4.2002

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins um að veita fréttamönnum aðgang að bréfi sem það hafði sent tilteknum aðilum um sviptingu atkvæðisréttar þeirra á aðalfundi viðskiptabanka. Takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna. Takmarkanir á upplýsingarétti vegna viðskipta- og fjárhagshagsmuna. Þagnarskylda. Eftirlitsskylda hins opinbera. Gildissvið upplýsingalaga. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-146/2002 Úrskurður frá 4. apríl 2002 - 4.4.2002

Kærð var synjun flugmálastjórnar um að veita upplýsingar um flugferil þyrlu vegna þyrluslyss. Rafræn gögn. Kærufrestur. Kæruleiðbeiningar. Leiðbeiningarskylda stjórnvalda. Fyrirliggjandi gögn. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-144/2002 Úrskurður frá 21. mars 2002 - 21.3.2002

Kærð var synjun félagsmálastjóra Kópavogsbæjar um að veita aðgang að tilteknum gögnum um daggæslu tiltekinna aðila. Rannsókn eða saksókn í opinberu máli. Takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna. Aðgangur að hluta skjals. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-145/2002 Úrskurður frá 7. mars 2002 - 7.3.2002

Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands um að veita aðgang að upplýsingum um greiðslumark á ríkisjörð við sölu hennar til ábúenda og ráðstöfun greiðslumarksins eftir að jörðin hafði verið afsalað til þeirra. Takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-143/2002 Úrskurður frá 4. mars 2002 - 4.3.2002

Kærð var synjun rannsóknarnefndar flugslysa um að veita aðgang að ratsjárgögnum flugferla fjögurra tilgreindra flugvéla að Reykjavíkurflugvelli að kvöldi [dags.] og um að láta honum í té afrit af þeim á prentuðu eða tölvutæku formi. Rannsókn eða saksókn í opinberu máli. Gildissvið upplýsingalaga. Vörslur gagna. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Leiðbeiningarskylda stjórnvalda. Frávísun. Lesa meira
 

A-142/2002 Úrskurður frá 8. febrúar 2002 - 8.2.2002

Kærð var synjun forsætisráðuneytisins um að veita aðgang að upplýsingum um skiptingu kostnaðar við einkavæðingu sem leitað var eftir fjárveitingu fyrir í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2001. Takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna. Takmarkanir á upplýsingarétti vegna almannahagsmuna. Viðskipta- og einkahagsmunir. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-141/2002 Úrskurður frá 18. janúar 2002 - 18.1.2002

Kærð var meðferð úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta um aðgang að tilteknum gögnum. Kæruheimild. Málshraði. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun. Lesa meira
 

A-140/2002 Úrskurður frá 18. janúar 2002 - 18.1.2002

Kærð var synjun flugmálastjórnar um að veita aðgang að skráðum upplýsingum um hvað fór fram á svonefndum rýnifundi sem haldinn var á vegum stofnunarinnar um flugslys. Rannsókn eða saksókn í opinberu máli. Gildissvið upplýsingalaga. Upplýsinga ekki aflað annars staðar frá. Upplýsingaréttur aðila. Eigin afnot stjórnvalds af vinnuskjali. Synjun staðfest. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica