Uppkveðnir úrskurðir

A-195/2004 Úrskurður frá 30. desember 2004 - 30.12.2004

Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um að veita aðgang að gögnum um viðræður forsætisráðherra og utanríkisráðherra við aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna 5. júní 2003. Vinnuskjal sem stjórnvald hefur ritað til eigin afnota. Öryggi og varnir ríkisins. Samskipti við önnur ríki. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-191/2004 Úrskurður frá 22. desember 2004 - 22.12.2004

Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um að veita aðgang gögnum um árás á íslenska friðargæsluliða í Kabúl í Afganistan 23. október 2004. Vinnuskjal sem stjórnvald hefur ritað til eigin afnota. Einkamálefni einstaklinga. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Aðgangur veittur að hluta skjals. Lesa meira
 

A-194/2004 Úrskurður frá 17. desember 2004 - 17.12.2004

Kærð var synjun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. um að veita aðgang að gögnum um bílagæslu við flugstöðina og meðferð utanríkisráðuneytisins á sams konar beiðni.Gildissvið upplýsingalaga. Gögn ekki í vörslum stjórnvalds. Kæruheimild. Frávísun. Lesa meira
 

A-193/2004 Úrskurður frá 16. desember 2004 - 16.12.2004

Kærð var synjun dóms- og kirkjumálaráðuneytisins um að veita aðgang að bréfi frá einum umsækjenda um embætti hæstaréttardómara. Umsóknir um störf hjá ríki eða sveitarfélögum og öll gögn sem þau varða. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-192/2004 Úrskurður frá 2. desember 2004 - 2.12.2004

Kærð var synjun Reykjavíkurhafnar um að veita óskoraðan aðgang að samningi hafnarinnar um útvegun fyllingarefnis fyrir höfnina á árunum 1997 til 1999 og að framlengingu samningsins til og með árinu 2003. Málshraði. Form aðgangs. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja. Samkeppni. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Aðgangur veittur. Afhenda ber ljósrit af undirrituðu frumriti. Lesa meira
 

A-189/2004 Úrskurður frá 18. nóvember 2004 - 18.11.2004

Kærð var synjun Umhverfisstofnunar um að veita aðgang að dagbók hundaræktar, sem stofnunin hafði aflað í eftirlits skyni. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-190/2004 Úrskurður frá 15. nóvember 2004 - 15.11.2004

Kærð var synjun Fiskistofu um að veita aðgang að upplýsingum um á milli hvaða aðila viðskipti með aflamark í þorski fóru fram 13. september 2004. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Tilgreining máls. Frávísun. Lesa meira
 

A-188/2004 Úrskurður frá 27. september 2004 - 27.9.2004

Kærð var synjun skrifstofu hæstaréttar um að veita að gang að nöfnum meðmælenda frambjóðenda við kjör forseta Íslands 26. júní 2004. Gildissvið upplýsinglaga. Frávísun. Lesa meira
 

A-187/2004 Úrskurður frá 27. september 2004 - 27.9.2004

Kærð var synjun Heilbrigðisstofnunar Austurlands um að veita aðgang að samningi um heilbrigðisþjónustu á virkjanasvæði Kárahnjúkavirkjunar. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja. Samkeppni. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-186/2004 Úrskurður frá 23. ágúst 2004 - 23.8.2004

Kærð var synjun Flugmálastjórnar um að veita aðgang að fundargerðum aðalvarðstjórafunda hjá flugumferðarþjónustu stofnunarinnar frá hluta árs 1999 og aðgang að dagbókum flugturnsins í Reykjavík fyrir tímabilið 1987 til 1990. Fundargerðir. Vinnuskjöl. Tilgreining máls. Fjöldi mála. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-185/2004 Úrskurður frá 23. ágúst 2004 - 23.8.2004

Kærð var synjun Reykjavíkurborgar, um að veita aðgang að launaseðlum þriggja nafngreindra starfsmanna borgarinnar á þriggja ára tímabili. Persónuupplýsingar. Fyrirliggjandi gögn. Frávísun. Lesa meira
 

A-184/2004 Úrskurður frá 4. ágúst 2004 - 4.8.2004

Kærð var synjun Ríkisútvarpsins um að veita aðgang að gögnum sem lögð voru fram á fundi útvarpsráðs 17. maí 2004. Fundargerðir. Vinnugögn. Samkeppnisstaða opinberrar stofnunar. Mikilvægir almannahagsmunir. Upplýsingar sem ekki verður aflað annars staðar frá. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-179/2004 Úrskurður frá 4. ágúst 2004 - 4.8.2004

Kærð var synjun sýslumannsins í Vestmannaeyjum um að veita aðgang að upplýsingum um tilboð sem borist höfðu í auglýsingar í bæjarblöðunum. Tilboð. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir fyrirtækja. Samkeppnissjónarmið. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-183/2004 Úrskurður frá 27. júlí 2004 - 27.7.2004

Kærð var synjun forsætisráðuneytisins um að veita aðgang að lista um greiðslur fyrir nefndarstörf á tilteknu tímabili. Einka- og fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-182/2004 Úrskurður frá 14. júlí 2004 - 14.7.2004

Kærð var synjun Borgarskjalasafns um að veita aðgang að gögnum um afa og ömmu kæranda. Einka- og fjárhagsmálefni einstaklinga. Heilbrigðisupplýsingar. Upplýsingar varða kæranda sjálfan. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-181/2004 Úrskurður frá 2. júlí 2004 - 2.7.2004

Kærð var synjun fjármálaráðuneytisins um að veita kæranda aðgang að upplýsingum um heildargreiðslur ríkisins til fyrirtækis í tengslum við verksamning og hugbúnaðarkaup á grundvelli útboðs Ríkiskaupa. Bókhaldsgögn. Fyrirliggjandi gögn. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-180/2004 Úrskurður frá 10. júní 2004 - 10.6.2004

Kærð var synjun Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins um að veita aðgang að upplýsingum um söluverð og greiðsluskilmála á tilteknu vörumerki. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir fyrirtækja. Upplýsingar varða kæranda sjálfan. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-178/2004 Úrskurður frá 28. maí 2004 - 28.5.2004

Kærð var synjun bókasafns Vestmannaeyja um aðgang að upplýsingum um umsækjendur um starf bókavarðar. Umsækjendur um opinber störf. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-177/2004 Úrskurður frá 28. maí 2004 - 28.5.2004

Kærð var synjun Vestmannaeyjabæjar um að veita aðgang að lána-, gjaldmiðla- og vaxtaskiptaamningum vegna uppgjörs á gjaldeyrisskiptasamningi frá árinu 2001. Samningur. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir fyrirtækis. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-176/2004 Úrskurður frá 28. maí 2004 - 28.5.2004

Kærð var synjun fjármálaráðuneytisins að veita aðgang að bréfi til innheimtumanna ríkissjóðs um skuldajöfnun vaxta- og barnabóta. Fyrirliggjandi gögn. Frávísun. Lesa meira
 

A-175/2004 Úrskurður frá 24. maí 2004 - 24.5.2004

Kærð var synjun formanns nefndar skv. 5. mgr. 3. gr. laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu um að veita aðgang að öllum niðurstöðum nefndarinnar á tilteknu árabili. Ótiltekinn fjölda mála. Þagnarskylda. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-174/2004 Úrskurður frá 24. maí 2004 - 24.5.2004

Kærðar voru synjanir forsætisráðuneytisins um að veita aðgang að upplýsingum um utanferðir forsætisráðherra. Bókhaldsgögn. Fyrirliggjandi gögn. Fjöldi mála. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-173/2004 Úrskurður frá 24. maí 2004 - 24.5.2004

Kærð var synjun Akureyrarbæjar um að veita aðgang að upplýsingum um leigu bílaleigubíla hjá Akureyrarbæ. Bókhaldsgögn. Fyrirliggjandi gögn. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-172/2004 Úrskurður frá 24. maí 2004 - 24.5.2004

Kærð var synjun Kópavogsbæjar um að veita aðgang að upplýsingum um leigu bílaleigubíla hjá Kópavogsbæ. Bókhaldsgögn. Fyrirliggjandi gögn. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-170/2004 Úrskurður frá 26. mars 2004 - 26.3.2004

Kærð var synjun Fiskræktarsjóðs um að veita aðgang að upplýsingum um umsóknir um styrki og styrkveitingar úr sjóðnum á árunum 2002 og 2003. Leiðbeiningarskylda stjórnvalda. Kærufrestur. Almannahagsmunir. Meðferð almannafjár. Fundargerðir. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-171/2004 Úrskurður frá 15. mars 2004 - 15.3.2004

Kærð var synjun Landmælinga Íslands um að veita aðgang að áskriftarsamningi við ríkisstofnanir um aðgang að hæðarlíkani af Íslandi, svo og að nánar tilgreindum upplýsingum þar að lútandi. Vinnuskjal til eigin afnota. Samningur. Fyrirhugað útboð. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-169/2004 Úrskurður frá 1. mars 2004 - 1.3.2004

Kærð var synjun framkvæmdanefndar um einkavæðingu um að veita aðgang að kaupsamningi og umfjöllun um sölu á hlut íslenska ríkisins í Íslenskum aðalverktökum hf. í fundargerðum nefndarinnar. Fundargerðir. Vinnuskjöl stjórnvalds. Samningur. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir fyrirtækis. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-168/2004 Úrskurður frá 20. febrúar 2004 - 20.2.2004

Kærð var synjun fjármálaráðuneytisins um að veita aðgang að upplýsingum um fjölda notendaleyfa og greiðslur fyrir aukaverk í tengslum við verksamning og hugbúnaðarkaup á grundvelli útboðs Ríkiskaupa í janúar 2001. Framkvæmd útboðs. Upplýsingar sem varða kæranda sjálfan. Mikilvægir fjárhags- og viðskiptahagsmunir fyrirtækis. Fyrirliggjandi gögn. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica