Uppkveðnir úrskurðir

A-222/2005 Úrskurður frá 30. nóvember 2005 - 30.11.2005

Kærð var synjun Fiskistofu um aðgang að upplýsingum um hverjir stæðu að baki viðskiptum með aflamark hinn 13. september 2004. Aflamark. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Synjun staðfest, á grundvelli upplýsingalaga. Lesa meira
 

A-221/2005 Úrskurður frá 16. nóvember 2005 - 16.11.2005

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins um aðgang að öllum gögnum sem lágu til grundvallar áliti stofnunarinnar sem fram kom í bréfi hennar til tiltekins lífeyrissjóðs. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Þagnarskylda. Frávísun. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-220/2005 Úrskurður frá 16. nóvember 2005 - 16.11.2005

Kærð var synjun áfrýjunarnefndar samkeppnismála um aðgang að upplýsingum um gengistap og hækkun launa umfram neysluverðsvísitölu hjá fyrirtækjunum [X] hf. og [Y] hf. sem felldar voru út úr úrskurði nefndarinnar nr. 3/2004. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Synjun staðfest.

Lesa meira

 

A-218/2005 Úrskurður frá 16. nóvember 2005 - 16.11.2005

Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins um aðgang að upplýsingum um það hverjir hefðu fengið diplómatísk vegabréf og þjónustuvegabréf í tíð [X] sem utanríkisráðherra. Til vara var farið fram á lista yfir alla handhafa slíkra vegabréfa. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Frávísun Lesa meira
 

A-219/2005 Úrskurður frá 10. október 2005 - 10.10.2005

Kærðar voru fimm synjanir framkvæmdanefndar um einkavæðingu. Úrskurðað var um fjóra kæruliði með úrskurði A-215/2005. Í þessu máli var síðasti liðurinn tekinn til úrskurðar, þ.e. synjun um aðgang að fundargerðum framkvæmdanefndar um einkavæðingu varðandi sölu á hlutabréfum ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Fundargerðir. Vinnuskjöl. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-217/2005 Úrskurður frá 10. október 2005 - 10.10.2005

Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins um aðgang að upplýsingum um hvert lægsta, hæsta og meðalverð hafi verið í hverjum tollflokki vegna tilboða í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum annars vegar og ostum hins vegar fyrir tímabilið 1. júlí 2004 – 30. júní 2005. Innflutningur. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagmmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-216/2005 Úrskurður frá 14. september 2005 - 14.9.2005

Kærð var synjun heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um aðgang að gögnum er vörðuðu leyfisveitingu til framleiðslu forskriftarlyfja. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-215/2005 Úrskurður frá 7. september 2005 - 7.9.2005

Kærð var synjun framkvæmdanefndar um einkavæðingu á beiðni kæranda um a) afrit af niðurstöðum úr áreiðanleikakönnun fjárfestingabankans [Y], b) skýrslur fjárfestingabankans [Y] vegna sölu á Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., c) gögn sem Ríkisendurskoðun voru fengin í því skyni að vinna skýrslu um einkavæðingu helstu ríkisfyrirtækja árin 1998-2003, d) öll gögn sem [Z] voru fengin til að vinna úr, þ.m.t. vinnureglur sem þeim voru settar vegna einkavæðingar Landssíma Íslands hf. og e) fundargerðir framkvæmdanefndar um einkavæðingu varðandi sölu á hlutabréfum ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Tilgreining máls eða gagna. Aðgangur veittur. Frávísun staðfest. Frávísun.

Lesa meira
 

A-214/2005 Úrskurður frá 25. júlí 2005 - 25.7.2005

Kærð var synjun Fjársýslu ríkisins um aðgang að upplýsingum um föst laun og kjör 49 nafngreindra opinberra starfsmanna fyrir nóvember 2004. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kærufrestur. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-213/2005 Úrskurður frá 25. júlí 2005 - 25.7.2005

Kærð var synjun Flugmálastjórnar um að veita aðgang að fundargerðum aðalvarðstjórafunda hjá flugumferðarþjónustu stofnunarinnar á tilteknu tímabili. Ennfremur var kærð synjun Flugmálastjórnar um að veita aðgang að dagbókum flugturnsins í Reykjavík fyrir tiltekið tímabil. Tilgreining máls eða gagna. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-212/2005 Úrskurður frá 28. júní 2005 - 28.6.2005

Kærð var synjun skólanefndar Landakotsskóla um afhendingu á minnisblaði sem lagt hefði verið fram á fundi fulltrúa kennararáðs með skólanefnd. Gildissvið upplýsingalaga. Minnispunktar. Varðveisla gagna. Kröfu hafnað. Lesa meira
 

A-211/2005 Úrskurður frá 14. júní 2005 - 14.6.2005

Kærð var synjun Rannsóknarnefndar flugslysa um aðgang að umsögn nefndarinnar um drög að lokaskýrslu sérstakrar rannsóknarnefndar sem skipuð var til að rannsaka orsakir flugslyss. Jafnframt var kært að Rannsóknarnefnd flugslysa skyldi ekki taka afstöðu til kröfu hans um aðgang að öllum bréfaskriftum milli Rannsóknarnefndar flugslysa og hinnar sérstöku rannsóknarnefndar. Flugslys. Vinnuskjöl. Synjun að svo stöddu staðfest. Lesa meira
 

A-210/2005 Úrskurður frá 14. júní 2005 - 14.6.2005

Kærð var synjun landlæknisembættisins um afrit af kvörtunarbréfi sem embættinu hefði borist vegna meðferðar sem veitt væri af hálfu kæranda. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun. Lesa meira
 

A-209/2005 Úrskurður frá 14. júní 2005 - 14.6.2005

Kærð var synjun viðskiptaráðuneytisins um afhendingu á afriti af samningi um sölu á hlut íslenska ríkisins í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-208/2005 Úrskurður frá 10. júní 2005 - 10.6.2005

Óskað var eftir því að úrskurðarnefndin tæki afstöðu til þriggja álitamála. Í fyrsta lagi hvort úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki til meðferðar kæru á þeirri ákvörðun Samkeppnisstofnunar að veita [X] aðgang að svonefndum trúnaðarupplýsingum. Voru hin tvö álitamálin skilyrt að því leyti að úr þeim yrði eingöngu leyst ef svar úrskurðarnefndarinnar við fyrsta álitaefninu væri á þá leið að nefndin tæki við kærum í málum sem þessum. Valdmörk úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frávísun. Lesa meira
 

A-207/2005 Úrskurður frá 10. júní 2005 - 10.6.2005

Kærð var synjun Umhverfisstofnunar um aðgang að gagnagrunni um þá sem hafa opinber réttindi sem meindýraeyðar eða garðaúðarar. Í sama bréfi var kærð synjun Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur um aðgang að gagnagrunni um þá sem hafa opinbert starfsleyfi í sömu starfsgreinum. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Framsending. Kærufrestur. Kæruleiðbeiningar. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-206/2005B Úrskurður frá 10. júní 2005 - 10.6.2005

Þess var krafist að réttaráhrifum úrskurðar í málinu A-206/2005 yrði frestað. Krafa um frestun réttaráhrifa. Kröfu hafnað. Lesa meira
 

A-206/2005 Úrskurður frá 25. maí 2005 - 25.5.2005

Kærð var synjun Vegagerðarinnar um aðgang að tilboðum [A] og [B] í liði E1, F2, A1 og L1 samkvæmt tilboðsskrá í útboði Vestmannaeyjaferju 2001-2003. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-205/2005 Úrskurður frá 25. maí 2005 - 25.5.2005

Kærð var synjun tollstjórans í Reykjavík um upplýsingar um hvort [A], [B] og eftir atvikum fleiri aðilar hefðu fengið sömu tolla og vörugjöld, sem kæranda var gert að greiða, felld niður vegna innflutnings á sambærilegum búnaði. Jafnræðisreglan. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls eða gagna í máli. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-204/2005 Úrskurður frá 27. apríl 2005 - 27.4.2005

Kærð var synjun yfirdýralæknis um að veita aðgang að öllum gögnum er fyrir lægju hjá embættinu vegna umsagna þess til landbúnaðarráðuneytisins um löggildingu tiltekinna sláturhúsa. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-203/2005 Úrskurður frá 11. apríl 2005 - 11.4.2005

Kærð var synjun yfirdýralæknis um að veita aðgang að öllum gögnum er fyrir lægju hjá embættinu vegna umsagna þess til landbúnaðarráðuneytisins um löggildingu sláturhúsa í tilteknum sveitarfélögum. Einnig var farið fram á aðgang að skýrslum vegna árlegs eftirlits með þessum sláturhúsum á yfirstandandi ári. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-202/2005 Úrskurður frá 11. apríl 2005 - 11.4.2005

Kærð var synjun yfirdýralæknis um að veita aðgang að skjali, „athugasemdum á blaði“, sem fylgdi skýrslu um sláturhús [A]. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-201/2005 Úrskurður frá 11. apríl 2005 - 11.4.2005

Kærð var synjun Umhverfisstofnunar um aðgang að gagnagrunni um þá sem hafa opinber réttindi sem meindýraeyðar eða garðaúðarar. Einnig var kærð synjun Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur um aðgang að gagnagrunni um þá sem hafa opinbert starfsleyfi sem meindýraeyðar eða garðaúðarar. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Framsending. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Frávísun. Lesa meira
 

A-200/2005 Úrskurður frá 30. mars 2005 - 30.3.2005

Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins um að afhenda ættbók Cocker Spaniel hundsins [A]. Kærufrestur. Frávísun. Lesa meira
 

A-198/2005 Úrskurður frá 30. mars 2005 - 30.3.2005

Kærð var synjun landbúnaðarráðuneytisins, um að veita aðgang að öllum gögnum um síðustu löggildingu sláturhúss [A], þ. á m. að umsögn embættis yfirdýralæknis um málið og gögnum henni tengdri. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls eða gagna í máli. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A-199/2005 Úrskurður frá 25. febrúar 2005 - 25.2.2005

Kærð var synjun Bændasamtaka Íslands um að veita aðgang að lista yfir greiðslumark í fjárbúskap. Jafnframt fór kærandi fram á að fá aðgang að lista yfir mjólkurkvóta allra framleiðenda á landinu. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Kerfisbundin skráning og vinnsla upplýsinga. Stjórnvaldsákvörðun. Tilgreining máls eða gagna í máli. Frávísun á báðum kröfum. Lesa meira
 

A-197/2005 Úrskurður frá 26. janúar 2005 - 26.1.2005

Kærð var synjun Hafnarfjarðarbæjar um að veita aðgang að yfirliti yfir allar samþykktar íbúðir norðan Reykjanesbrautar. Tilgreining máls eða gagna. Leiðbeiningar um afmörkun beiðni. Frávísun staðfest. Lesa meira
 

A-196/2005 Úrskurður frá 26. janúar 2005 - 26.1.2005

Kærð var synjun yfirdýralæknis um að veita aðgang að öllum gögnum er fyrir lægju hjá embættinu vegna umsagna þess til landbúnaðarráðuneytisins um löggildingu sláturhúsa í tilteknum sveitarfélögum. Einnig var farið fram á aðgang að skýrslum vegna árlegs eftirlits með þessum sláturhúsum á yfirstandandi ári. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Einni kæru skipt upp í fleiri mál. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Frávísun á fyrri kröfu. Aðgangur veittur skv. seinni kröfu. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica