Uppkveðnir úrskurðir

A 324/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009 - 22.12.2009

Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að neita um upplýsingar er varða aðdraganda þess að sett var skilanefnd yfir [A]. Frávísun. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A 323/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009 - 22.12.2009

Kærð var ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að og afriti af gögnum sem sýndu afgreiðslu og niðurstöðu Seðlabankans varðandi lánsbeiðni forráðamanna [A] frá 26. september 2008 svo og af lánsbeiðninni sjálfri. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A 322/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009 - 22.12.2009

Kærð var ákvörðun Matvælastofnunar um að synja beiðni um aðgang að öllum gögnum í fórum stofnunarinnar er vörðuðu salmonellusýkingar í svínum eða afurðum og úrgangi frá tilteknu svínabúi. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A 321/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009 - 22.12.2009

Kærð var ákvörðun Matvælastofnunar um að synja beiðni um aðgang að gögnum. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A 320/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009 - 22.12.2009

Kærð var synjun Reykjavíkurborgar á afhendingu gagna varðandi EES útboð nr. 12165 og til urðu eftir að tilkynnt var um val á viðsemjanda. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Samkeppnishagsmunir hins opinbera. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur Lesa meira
 

A 319/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009 - 22.12.2009

Kærður var óhæfilegur dráttur á afgreiðslu Seðlabanka Íslands á beiðni um gögn. Gögn er varða tiltekið mál. Tilgreining máls eða gagna í máli. Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A 318/2009. Úrskurður frá 22. desember 2009 - 22.12.2009

Kærð var sú ákvörðun sýslumannsins á Sauðárkróki að synja um aðgang að tveimur skýrslum sem gerðar voru af starfsmönnum ríkislögreglustjóra um mitt ár eða síðari hluta árs 2007 varðandi málefni lögreglunnar á Sauðárkróki. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Kærufrestur. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Tilgreining máls eða gagna í máli. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A 317/2009. Úrskurður frá 23. nóvember 2009 - 23.11.2009

Kærð var sú ákvörðun forsætisráðuneytisins að synja beiðni um aðgang að gögnum er tengdust ráðgjöf ríkislögmanns um lögfræðileg álitaefni er lytu að framkvæmd laga nr. 125/2008 um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Mikilvægir almannahagsmunir vegna fyrirhugaðra ráðstafana eða prófa á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A 316/2009. Úrskurður frá 23. nóvember 2009 - 23.11.2009

Kærð var sú ákvörðun stjórnar fjarskiptasjóðs að synja beiðni um aðgang að gögnum er varða samning fjarskiptasjóðs og tiltekins fyrirtækis um háhraðatengingar. Aðili máls. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A 315/2009. Úrskurður frá 10. nóvember 2009 - 10.11.2009

Kærð var sú ákvörðun sveitarfélagsins Borgarbyggðar að synja um aðgang að gögnum sem varpað gætu ljósi á lóðarmörk sem kærandi taldi að samið hefði verið um. Aðili máls. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Einkamálefni einstaklinga. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Vinnuskjöl. Frávísun. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A 314/2009 Úrskurður frá 30. september 2009 - 7.10.2009

Kærð var sú ákvörðun skilanefndar Landsbanka Íslands hf. að svara ekki beiðni um afhendingu á upplýsingum og gögnum um það hvort og þá hvenær ákvörðun hafi verið tekin af skilanefndinni um að framselja tiltekinn lánasamning milli kæranda og Landsbanka Íslands hf. til NIB hf. ásamt öðrum gögnum varðandi lánasamninginn. Frávísun. Lesa meira
 

A 313/2009 Úrskurður frá 24. september 2009 - 7.10.2009

Kærð var synjun sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps á beiðni um að afhent afrit af öllum reikningum sem færðir hefðu verið til gjalda á ?rotþróargjaldareikning? hjá Svalbarðsstrandarhreppi árin 2005 til 2008. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A 312/2009 Úrskurður frá 24. september 2009 - 7.10.2009

Kærð var sú ákvörðun Alþingis að afhenda ekki upplýsingar um sundurliðaðar kostnaðargreiðslur til þingmanna af almannafé. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun. Lesa meira
 

A 311/2009 Úrskurður frá 24. september 2009 - 7.10.2009

Kærð var sú ákvörðun félags- og tryggingamálaráðuneytisins að afhenda einungis upplýsingar um nöfn og stöðu umsækjenda um stöðu framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík en ekki upplýsingar um menntun umsækjenda um stöðuna. Umsóknir um störf hjá ríki eða sveitarfélögum og gögn sem þær varða. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-310/2009 úrskurður frá 14. ágúst 2009 - 31.8.2009

Kærð ákvörðun viðskiptaráðuneytisins frá 27. apríl s.á. þess efnis að synja um aðgang að upplýsingum um tillögur nefndar er fara átti yfir hvernig innleiðingu Íslands á tilskipun Evrópusambandsins um innlánstryggingar væri háttað og þáverandi viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, skipaði vorið 2007. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A-309/2009 úrskurður frá 14. ágúst 2009 - 31.8.2009

Kærð var synjun Austurhafnar-TR ehf. á beiðni um aðgang að upplýsingum um hversu mikið Austurhöfn-TR ehf. greiðir eða ábyrgist vegna yfirtöku á Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu á austurbakka Reykjavíkurhafnar, að undanskildum þeim 14,5 milljörðum króna sem ríkið og Reykjavíkurborg hafa þegar lýst yfir að þau muni láta renna til hússins. Kæru vísað frá. Lesa meira
 

A-308/2009 úrskurður frá 14. ágúst 2009 - 31.8.2009

Kærð var ákvörðun Reykjavíkurborgar að synja afhendingu gagna sem lögð voru fram á fundi borgarráðs 28. maí 2009 í tilefni af fyrirspurn fulltrúa í borgarráði frá 14. þess sama mánaðar. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A 307/2009B úrskurður frá 14. ágúst 2009 - 31.8.2009

Með bréfi, dags. 22. júlí 2009, fóru Ríkiskaup þess á leit við úrskurðarnefnd um upplýsingamál, með vísan til 18. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, að réttaráhrifum úrskurðar nr. A-307/2009, sem kveðinn var upp 16. sama mánaðar, yrði frestað. Kröfu Ríkiskaupa um að frestað verði réttaráhrifum úrskurðar frá 16. júlí 2009 í máli nr. A-307/2009 er hafnað. Lesa meira
 

A 307/2009 Úrskurður frá 16. júlí 2009 - 16.7.2009

Kærð var synjun Ríkiskaupa og Austurhafnar-TR ehf. á beiðni um afhendingu afrits af tilboði og öðrum fylgigögnum sem og viðaukum ef einhverjir væru með samningi sem Ríkiskaup og Austurhöfn-TR ehf. gerðu við [A] 9. mars 2006. Aðili máls. Gildissvið upplýsingalaga. Gögn er varða tiltekið mál. Kröfugerð kæranda. Mikilvægir almannahagsmunir vegna viðskipta. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Vinnuskjöl. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A-306/2009 úrskurður frá 25. júní 2009 - 15.7.2009

Kærð var ákvörðun Skipulagsstofnunarað synja um afrit af umsögn stofnunarinnar til Borgarbyggðar, dags. 10. mars 2009, við beiðni Borgarbyggðar um heimild til að auglýsa deiliskipulagsbreytingu Stuttárbotnasvæðisins í Húsafelli í B-deild Stjórnartíðinda. Máli vísað frá. Lesa meira
 

A-305/2009 úrskurður frá 25. júní 2009 - 15.7.2009

Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um að synja um aðgang að öllum gögnum, skráðum í skjalastöð Seðlabanka Íslands, er vörðuðu og lögðu grunn að tillögu formanns bankastjórnar Seðlabankans sem lögð hafi verið fram á fundi seðlabankastjóra, forsætisráðherra, forstjóra og formanns stjórnar [B] að kvöldi 28. september 2008 um að Seðlabankinn og/eða ríkið myndu kaupa 75% hlutafjár í [B]. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A 304/2009 Úrskurður frá 26. maí 2009 - 25.6.2009

Kærð var synjun Fasteignamats ríkisins, nú Fasteignaskrá Íslands, á beiðni [A] um aðgang að upplýsingum um föst laun og önnur föst kjör [B], vegna starfa hans hjá Fasteignamati ríkisins, eins og þau voru í maí 2007. Þá segir í kærunni að kærður sé óhæfilegur dráttur á afgreiðslu Fasteignamats ríkisins á afgreiðslu á beiðni kæranda. Aðgangur veittur að hluta. Frávísun. Lesa meira
 

A 303/2009 Úrskurður frá 26. maí 2009 - 22.6.2009

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um afhendingu afrits af ráðningarsamningi [A], auk skjalfestra breytinga sem gerðar hefðu verið á samningnum, bréfi viðskiptaráðherra til stjórnar Fjármálaeftirlitsins um að hún gengi frá starfslokum við [A] og segði af sér í kjölfarið, og starfslokasamningi sem stjórn Fjármálaeftirlitsins hefði gert við [A]. Beiðni um aðgang ekki beint að réttu stjórnvaldi. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Framsending. Mikilvægir almannahagsmunir vegna viðskipta. Frávísun. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A 302/2009. Úrskurður frá 13. maí 2009 - 28.5.2009

Kærð var synjun Mosfellsbæjar á beiðni um aðgang að gögnum vegna skipulags hverfisverndar og framkvæmda í tengslum við uppbyggingu í Helgafellslandi í Mosfellsbæ. Upplýsingar um umhverfismál. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A 301/2009 Úrskurður frá 4. maí 2009 - 27.5.2009

Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um að fá aðgang að minnisblaði [?] um símtal hans við forsætisráðherra Íslands. Gildissvið upplýsingalaga. Gögn ekki í vörslum stjórnvalds. Frávísun

Lesa meira
 

A 300/2009 Úrskurður frá 4. maí 2009 - 26.5.2009

Kærð var synjun Súðavíkurhrepps um að synja um aðgang að lögfræðiáliti sem sveitarfélagið aflaði í tilefni af kröfu kærenda um greiðslu útlagðs lögmannskostnaðar vegna stjórnsýslukæra á hendur sveitarfélaginu í tengslum við ákvarðanir þess um útgáfu tiltekinna byggingarleyfa. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Gildissvið upplýsingalaga. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A 299/2009 Úrskurður frá 4. maí 2009 - 26.5.2009

Kærð var synjun Landmælinga Íslands á afhendingu skýrslu vinnusálfræðings sem unnin var vegna samskiptavanda sem upp kom innan stofnunarinnar. Afrit af gögnum. Gildissvið upplýsingalaga. Trúnaðarmál. Aðgangur veittur Lesa meira
 

A 298/2009 Úrskurður frá 19. mars 2009 - 14.4.2009

Kærð var synjun um upplýsingar um samsetningu innlána í Icesave-sjóðum Landsbankans sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar færu með á fund um lausn og lánveitingar vegna Icesave. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur

Lesa meira
 

A 297/2009 Úrskurður frá 19. mars 2009 - 14.4.2009

Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni um aðgang að skýrslu um ferð fulltrúa bankans til Lundúna í febrúar 2008. Mál í stjórnsýslunni. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Tilgreining máls eða gagna í máli. Vinnuskjöl. Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A 296/2009 Úrskurður frá 19. mars 2009 - 14.4.2009

Kærður var skortur á svörum Seðlabanka Íslands við beiðni um aðgang að minnismiðum sem [A] hefði vísað til í viðtali við [X]. Tilgreining máls eða gagna í máli. Vinnuskjöl. Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A 295/2009 Úrskurður frá 19. mars 2009 - 14.4.2009

Kærð var afgreiðslu Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík á beiðni um upplýsingar og afrit af reikningum vegna heimilissjóðs og fæðispeninga á áfangastaðnum [X]. Tilgreining máls eða gagna í máli. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun.
Lesa meira
 

A 294/2009 Úrskurður frá 29. janúar 2009 - 19.2.2009

Kærð var synjun synjun Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar á að veita kæranda aðgang að gögnum frá dvalarheimilinu Seljahlíð um ömmu hans og afa, [A] og [B]. Einstaklegir hagsmunir umfram aðra. Aðgangur veittur. Lesa meira
 

A 293/2009 Úrskurður frá 29. janúar 2009 - 19.2.2009

Kærð var synjun Flugmálastjórnar Íslands á beiðni um afhendingu afrits af viðbúnaðaráætlunum Flugstoða ohf. og Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli samkvæmt gr. 8.2 í viðauka I með reglugerð nr. 535/2006, um starfsleyfi flugleiðsöguþjónustu. Afmörkun kæruefnis. Mikilvægir almannahagsmunir vegna fyrirhugaðra ráðstafana eða prófa á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Vinnuskjöl. Þagnarskylda. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A 292/2008 Úrskurður frá 22. desember 2008 - 5.1.2009

Kærð voru ófullnægjandi svör Mosfellsbæjar við erindum þar sem óskað var aðgangs að gögnum vegna ákvarðanatöku bæjarins um lagningu tengibrautar frá Helgafellslandi um Álafossveg að Vesturlandsvegi. Kæruheimild. Frávísun.

Lesa meira
 

A 291/2008 Úrskurður frá 19. desember 2008 - 5.1.2009

Kærð voru viðbrögð og svör prófasts [X-prófastsdæmis], biskups Íslands, starfsfólks [Y-kirkju] og starfsfólks Biskupsstofu við beiðni um ýmsar upplýsingar. Gildissvið upplýsingalaga. Kæruheimild. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A 290/2008 Úrskurður frá 19. desember 2008 - 5.1.2009

Kærð var synjun Nýja Landsbankans hf. (nú NBI hf.) á beiðni um upplýsingar um laun bankastjóra og annarra stjórnenda bankans. Gildissvið upplýsingalaga. Frávísun.

Lesa meira
 

A 289/2008 Úrskurður frá 19. desember 2008 - 5.1.2009

Kærð var synjun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá sama degi um að veita kæranda upplýsingar um hve mörg mál hafi formlega verið látin niður falla mánuðina janúar, febrúar og mars 2008, sundurliðaðar eftir brotaflokkum. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun.
Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica