Uppkveðnir úrskurðir

A-350/2010. Úrskurður frá 20. desember 2010 - 23.12.2010

Kærð var ákvörðun Seltjarnarnesbæjar um synjun á beiðni um aðgang að samkomulagi milli Seltjarnarnesbæjar og Íslenskra aðalverktaka hf. um skipti hluta af svokallaðri „Lýsislóð“ og lóðarhluta við Hrólfsskálamel ásamt viðaukum og fylgiskjölum. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila.

Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A-349/2010. Úrskurður frá 20. desember 2010 - 23.12.2010

  Kærð var ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um synjun á beiðni um aðgang að athugasemdum sem bárust sveitarfélaginu eftir forstigskynningu á deiliskipulagstillögu og samantekt athugasemda sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar. Stjórnvaldsákvörðun. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum.

Frávísun.

Lesa meira
 

A-348/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010 - 14.12.2010

 Kærður var dráttur á afgreiðslu Þjóðskrár Íslands á beiðni um afhendingu upplýsinga og afrita gagna sem leiddu til ákvörðunar um breytta skráningu á fasteignamati tveggja eignarhluta kæranda. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum.

Frávísun.

Lesa meira
 

A-347/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010 - 14.12.2010

 Kærð var sú ákvörðun matsnefndar samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði nr. 61/2006 að synja um afhendingu sundurliðaðra útreikningsforsendna hverrar jarðar í veiðifélagi sem matsnefndin notaði við arðskrármat sitt. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum.

Frávísun.

Lesa meira
 

A-346/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010 - 14.12.2010

Kærð var sú ákvörðun Íslandsstofu að synja um aðgang að gögnum um ráðningu framkvæmdastjóra Íslandsstofu. Gildissvið upplýsingalaga. Umsóknir um störf hjá ríki eða sveitarfélögum og gögn sem þær varða. Aðgangur veittur að upplýsingum um nöfn, heimilisföng og starfsheiti umsækjenda.

Lesa meira
 

A-345/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010 - 14.12.2010

Kærð var sú ákvörðun Biskupsstofu að synja um aðgang að bréfi X til Kirkjuráðs. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A-344/2010. Úrskurður frá 1. september 2010 - 26.10.2010

Kærð var synjun samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Flugstoða ohf., nú Isavia ohf., á beiðni um afhendingu gagna um viðskiptaáætlun um byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Gildissvið upplýsingalaga. Samkeppnishagsmunir hins opinbera.

Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A-343/2010. Úrskurður frá 1. september 2010 - 25.10.2010

Kærð var sú ákvörðun Reykjavíkurborgar, Borgarskjalasafns Reykjavíkur,  að synja dætrum Y, sem var látinn, um aðgang að gögnum er varða barnaverndarmál föður þeirra og vistun hans á vistheimilinu A. Aðili máls. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga.

Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-342/2010. Úrskurður frá 29. júlí 2010 - 24.10.2010

  Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um afhendingu gagna er vörðuðu útboð Ríkiskaupa f.h. utanríkisráðuneytisins, á ljósleiðurum NATO og rekstur þeirra. Þjóðréttarlegar skuldbindingar. Vinnuskjöl. Öryggi og varnir ríkisins. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-341/2010. Úrskurður frá 7. júlí 2010 - 23.10.2010

Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar, Borgarskjalasafns Reykjavíkur, á beiðni um afrit af gögnum í fórum safnsins um afskipti barnaverndaryfirvalda af kæranda og vegna dvalar hans sem barns á vistheimili. Aðili máls. Ljósrit. Gögn ekki í vörslum stjórnvalds. Frávísun

Lesa meira
 

A-340/2010. Úrskurður frá 7. júlí 2010 - 22.10.2010

Kærð var ákvörðun Hafnarfjarðarkaupstaðar um synjun á afhendingu afrits af bréfi skólastjóra til starfsmanna skólans. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Skylda til að skrá mál og varðveita málsgögn.

Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A-339/2010. Úrskurður frá 7. júlí 2010 - 21.10.2010

  Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um afhendingu gagna og upplýsinga um það hvort peningamarkaðsinnlán hefðu verið færð milli ýmissa banka og sparisjóðs. Einnig var kærð synjun á beiðni um afhendingu afrita af bréfum sem Fjármálaeftirlitið hefði sent hlutaðeigandi aðilum um staðfestingu á millifærslu peningamarkaðsinnlánanna. Þagnarskylda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila.

Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-338/2010. Úrskurður frá 1. júní 2010 - 20.10.2010

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að minnisblaði til forstjóra FME er laut m.a. að því álitaefni hvað væru innlán. Þagnarskylda. Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A-337/2010. Úrskurður frá 1. júní 2010 - 19.10.2010

Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um afhendingu gagna er vörðuðu útboð Ríkiskaupa f.h. utanríkisráðuneytisins, á ljósleiðurum NATO og rekstur þeirra. Aðili máls. Vinnuskjöl. Samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A-336/2010. Úrskurður frá 1. júní 2010 - 18.10.2010

Kærð var ákvörðun Landsvirkjunar um synjun á afhendingu afrita af öllum samningum sem Landsvirkjun hafði gert við eigendur landareigna við neðrihluta Þjórsár á áhrifasvæði þeirra þriggja virkjana sem þar voru fyrirhugaðar, og tengdust virkjunaráformunum með einum eða öðrum hætti. Gildissvið laga um upplýsingarétt um umhverfismál.

Frávísun. Lesa meira
 

A 335/2010. Úrskurður frá 29. apríl 2010 - 1.7.2010

Kærð var sú ákvörðun Sambands íslenskra sveitarfélaga að synja um upplýsingar um nöfn umsækjanda um starf sérfræðings í félagsþjónustu sveitarfélaga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og nöfn þeirra umsækjenda sem boðaðir voru í viðtal vegna starfsins. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Stjórnvaldsákvörðun Lesa meira
 

A-334/2010. Úrskurður frá 29. apríl 2010 - 29.6.2010

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um aðgang að skýrslu PriceWaterhouseCoopers vegna athugunar á tilteknum þáttum í starfsemi [Y banka]. Aðili máls. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A 333/2010. Úrskurður frá 25. mars 2010 - 28.6.2010

Kærð var sú ákvörðun flugráðs að synja beiðni um aðgang að afriti reiknings gefnum út af [A] vegna jólveislu flugráðs. Aðili máls. Gildissvið gagnvart lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.

Lesa meira
 

A 332/2010. Úrskurður frá 25. mars 2010 - 26.6.2010

Kærð var synjun utanríkisráðuneytisins, forsætisráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins á afhendingu afrita eða uppskrifta af símtölum utanríkis-, forsætis- og fjármálaráðherra við erlenda starfsbræður sína. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun að hluta. Synjun staðfest.

Lesa meira
 

A 331/2010. Úrskurður frá 25. mars 2010 - 25.6.2010

 

Kært var að Reykjavíkurborg hefði ekki veitt upplýsingar um þá þjónustu sem öldruðum stendur til boða hjá borginni. Einnig var óskað eftir því að gefin yrðu upp nöfn og starfsheiti starfsmanna á fjármálaskrifstofu borgarinnar. Aðili máls. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Stjórnvaldsákvörðun. Upplýsingar ekki verið teknar saman. Frávísun.

Lesa meira
 

A 330/2010. Úrskurður frá 25. janúar 2010 - 24.6.2010

 

Kærð var ákvörðun Varnarmálastofnunar Íslands um að synja beiðni um aðgang að tilteknum hlutum samnings Varnarmálastofnunar Íslands og [B] sem og öðrum skjölum eða gögnum sem mál það varðaði hjá stofnuninni. Mikilvægir almannahagsmunir vegna öryggis- eða varnarmála. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila Vinnuskjöl. Frávísun að hluta. Aðgangur veittur að hluta.

Lesa meira
 

A 329/2010. Úrskurður frá 18. febrúar 2010 - 18.2.2010

Kærður var dráttur á svari við beiðni um aðgang að gögnum frá Háskóla Íslands. Kærandi aðili að stjórnsýslumáli. Gildissvið gagnvart stjórnsýslulögum. Frávísun. Lesa meira
 

A 328B/2010. Úrskurður frá 11. febrúar 2010 - 11.2.2010

Farið var fram á það við úrskurðarnefnd um upplýsingamál að úrskurður nefndarinnar nr. A-328/2010 yrði endurupptekinn og leiðréttur. Til vara var farið fram á að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað. Beiðni um endurupptöku máls. Frestun réttaráhrifa. Endurupptöku hafnað. Leiðréttingu hafnað. Frestun réttaráhrifa hafnað. Lesa meira
 

A 328/2010. Úrskurður frá 28. janúar 2010 - 28.1.2010

Kærð var ákvörðun Ríkiskaupa, Austurhafnar TR ehf. og Reykjavíkurborgar að hafna beiðni um afrit af öllum samningum og viðaukum sem gerðir hafa verið eftir 17. júlí 2008 og varða samninga ríkisins, Reykjavíkurborgar og Austurhafnar TR ehf. um byggingu tónlistarhúss við Austurhöfn í Reykjavík og ekki hefur verið fjallað um í kærumálum A-233/2006, 228-2006 og A-307-2009. Gildissvið upplýsingalaga Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur að hluta. Lesa meira
 

A 327/2010. Úrskurður frá 28. janúar 2010 - 28.1.2010

Kærð var ákvörðunsveitarfélagsins Borgarbyggðar að synja um afhendingu afrita tölvupósta er fóru á milli [A] og [B] héraðsdómslögmanns. Bréfaskipti við sérfræðinga til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A 326/2009. Úrskurður frá 13. janúar 2010 - 13.1.2010

Kærð var sú þá ákvörðun skrifstofu forseta Íslands að synja um afhendingu 17 bréfa sem tilgreind eru í svari embættisins til rannsóknarnefndar Alþingis, og afhent hafa verið rannsóknarnefndinni. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Synjun staðfest. Lesa meira
 

A 325/2009. Úrskurður frá 13. janúar 2010 - 13.1.2010

Kærð var sú þá ákvörðun skrifstofu forseta Íslands að synja um afhendingu 17 bréfa sem tilgreind eru í svari embættisins til rannsóknarnefndar Alþingis, og afhent hafa verið rannsóknarnefndinni. Mikilvægir almannahagsmunir vegna samskipta við önnur ríki. Synjun staðfest. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica